Icelandsnowsports er skíða- og brettaskóli staðsettur í Hlíðarfjalli. Við erum hópur skíða- og brettakennara með margra ára reynslu. Á Tröllaskaga og norðausturlandi eru 5 skíðasvæði og stutt þeirra á milli. Við viljum veita persónulega þjónustu og bjóðum uppá einka- og hópatíma að hámarki sex manns. Við kennum bæði byrjendum og lengra komnum.
Hvort sem þú ert að fara í fyrsta skipti í brekkurnar eða með mikla reynslu þá erum við mjög spennt fyrir því að gera upplifun þína einstaka.